Hörpuskel og Rækjur.
Hráefni:
400.g hörpudiskur
3.msk sítrónusafi
3.msk ólífuolía
2.msk hveiti
16.stk stórar rækjur
2.stk hvítlauksrif, söxuð
1.stk handfylli af fersku basil
salt og nýmalaður svartur pipar
Aðferð:
Þerrið hörpudiskinn og rækjurnar og kryddið með salti og pipar. Stráið dálitlu hveiti yfir fiskinn.
Hitið olíu á pönnu og steikið fiskinn. Látið malla í 2 mínútur og bætið þá basil og hvítlauk út á pönnuna. Hristið pönnuna vel svo allt blandast vel saman.
Látið malla áfram í tvær mínútur í viðbót.
Framreiðsla:
Kreistið sítrónusafa yfir og berið fram
og ef til vill góðu brauði og ísköldu hvítvíni.